Algengar spurningar

Er hægt að skila treyju?

Ekki er hægt að skila treyju ef þér finnst hún ekki flott, þetta á að vera óvænt og það finnst ekki öllum allt flott. Við gerum undantekningar þegar fólk biður um að skila vegna vitlausar stærðar eða þegar vörur eru gallaðar.

Eru treyjurnar alvöru?

Allar treyjurnar okkar eru ósviknar og koma frá viðurkenndum söluaðila í bretlandi.

Frá hvaða tímabili eru treyjurnar?

Treyjurnar geta verið frá hvaða tímabili sem er, það gerir Happatreyjuna fjölbreyttari og skemmtilegri. 

Sendiði út á land?

Já við sendum allar okkar pantanir í gegnum dropp.