Skilmálar

Skilmálar

Afgreiðslufrestur

Áætlaður afhendingartími í vefverslun Happatreyja er 1-3 dagar eftir að pöntun er stofnuð. Hinsvegar getur áætlaður biðtími verið lengri ef að mikið er að gera.

Vörur sem pantaðar eru í vefverslun Happatreyja er hægt að fá sendar með Dropp, eða sækja í verslunina Spilavini. Verslunin Spilavinir er á Suðurlandsbraut 48, 108 Reykjavík. Opið er 11-22 alla daga

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður innanlands fer eftir hvaða sendingarmáti er valinn í kaupferlinu. Sendingarkostnaður innanlands er alltaf tekinn fram áður en pöntun er kláruð. 

Greiðslur og öryggi við pantanir – Dulkóðun

Hægt er að greiða pantanir með greiðslukorti. Öll vinnsla kreditkortanúmera á netinu er dulkóðuð svo að öryggi kaupenda sé tryggt. Allar viðkvæmar upplýsingar, s.s. kreditkortanúmer, sem gefnar eru upp við pöntun á vef Happatreyja eru dulkóðaðar áður en þær eru sendar til okkar til að tryggja að óviðkomandi aðilar geta ekki komist yfir upplýsingarnar.

Pöntun er ekki afgreidd fyrr en staðfesting um greiðslu hefur borist.

Skilaréttur

Vörum fæst hvorki skipt né skilað.

Þar sem Happatreyjur flokkast sem happdrætti gilda ekki lög nr. 46/200 um húsgöngu- og fjarsölusamninga.

Virðisaukaskattur

Öll verð eru uppgefin í íslenskum krónum með virðisaukaskatti.

Fyrirvari

Öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur.

Öll verð á þessum vef geta breyst án fyrirvara. Við gerum okkar besta til að sýna réttar, uppfærðar upplýsingar, þá gæti komið fyrir að vara á vefnum er ekki með nýjustu upplýsingar. Ef það gerist að vara er sýnd með röngu verði, mynd, eða upplýsingum, þá getur Happatreyjur neitað að afgreiða vöruna eða fellt pöntunina niður.

Ef rétt verð er lægra en auglýst verð, þá rukkum við lægra verðið.

Ef rétt verð er hærra en auglýst verð, þá látum við þig vita og bjóðum að hætta við pöntunina, eða versla vöruna á réttu verði.

Skilmálarnir teljast samþykktir af hálfu viðskiptavinar þegar viðskipti hafa átt sér stað á milli kaupanda og seljanda.